Ingi Heiðmar Jónsson fæddur 1. ágúst 1947.

Sigríður Embla - Smellið til að stækka
 Þrír ættliðir - Halla Ósk, Jón afi, Sigríður Embla og Heiðmar Jónsson
 Starri Heiðmarsson og dætur - Smellið til að stækka
 Rakel Heiðmarsdóttir og Sigurður vefhönnuður- Smellið til að stækka
 Rakel, Bergþóra, Siggi og Starri að lokini Grand Canyon göngu- Smellið til að stækka

Uppeldi og fjölskylda
Alinn upp í Ártúnum í Blöndudal ásamt 6 systkinum af foreldrum sínum Sigríði Ólafsdóttur 041124 og Jóni Tryggvasyni 280317 bændum í Ártúnum. Heiðmar er elstur systkinanna, hin eru:

Síðustu misseri hefur Heiðmar búið í Gömlu-Þingborg í Flóa með konu sinni Hörpu Ólafsdóttur og tveimur dætrum þeirra: Höllu Ósk Heiðmarsdóttur 250588 og Sigríði Emblu 240592.

Næstu áform:
Heiðmar fékk
námsleyfi frá kennslu við Þingborgarskóla til að nema orgelleik, tónfræði og tónlistarsögu í Skyehéraði í Skotlandi. Þangað flytur fjölskyldan í byrjun september og dvelst fram í miðjan maí árið 2000.

NÝTT Gestabók:

Gaman væri að sá sem skoðar heimasíðuna skrái nafn sitt í gestabók.
Stökur má gjarnan
setja í stökuhornið.

Nám og störf:

Menntaskólinn á Akureyri 1962-1966 stúdent af máladeild ´66

Háskóli Íslands 1972 BA í Sagnfræði(aðalgrein 3 stig), íslensku 2 stig og alm. bókmenntsögu 1 stig

Kennaraháskóli Íslands júní 1993 Tónmennt val. Viðbótarnám í almennu kennaranámi að loknu kennaraprófi

´68 jan - ág. Unglingaskóli Hólmavík, kennari
70-71, 72-73, 74-84(þó ekki 80-81)
Steinsstaðaskóli kennari
73-74 og 84-85
Varmahlíðarskóli grunnskólakennari
80-81
Tónl.skóli A-Hún Skagaströnd og Blönduós tónlistarkennari
85-88
Söngmálastj.Þjóðk. og Lbs fulltrúi og ljósritari
88-95
Tónlistarskóli Árnessýslu og Flúðaskóli tónl.kennari og tónm.kennari
95-97
Þingborgarskóli og Tónl.Árn. grunnskólakennnari og tónl.k
97-99
Þingborgarskóli grunnskólakennari

Goðdalakirkja - Smellið til að stækka 

 Mælifellskirkja - Smellið til að stækka

 Villingaholtskirkja - Smellið til að stækka

75-82 Organisti við Goðdalakirkju
82-83 Organisti við
Víðimýrarkirkju
jan 83´- maí ´85 Organisti við Miklabæjar- og Flugumýrarkirkjur
jan 84´- maí´85 Organisti við
Reykja- Mælifells- og Goðdalakirkjur
haust ´85 - vor ´88 Organisti við
kirkju Óháða safnaðarins í Rvík
vor´88 - haust ´95 Organisti við
Hruna- og Hrepphólakirkjur
febr. ´97 - Organisti við Hraungerðis-
Villingaholts- og Laugardælakirkjur

Lífshlaup síðustu ára:
Vorið 1985 flutti Heiðmar til
Reykjavíkur þar sem hann hóf nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og starfaði við Landbókasafn Íslands við Hverfisgötu. Litlu síðar um sumarið tók hann hlutastarf hjá söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og organisti hjá Óháða söfnuðinum varð hann haustið 1985. Starfaði Heiðmar að þessu til vorsins 1988 er hann flutti austur í Árnesþing ásamt konu sinni Hörpu og nýfæddri dóttur þeirra. Hann varð tónlistar- og tónmenntakennari og organisti við Hruna-, Hrepphóla- og Tungufellskirkjur. Þar bjuggu þau sjö ár, en árið 1991 tók Harpa að starfa í Þingborgarhópnum, handverkshópi, sem vinnur gæðaull og vörur úr þeim. Sumarið 1995 flutti fjölskyldan í Flóann þar sem Heiðmar hefur síðan kennt við Þingborgarskóla og Tónlistarskóla Árnesinga til 1998 og varð organisti við Hraungerðis- Villingaholts- og Laugardælakirkjur 1. febrúar 1997. Harpa hefur unnið við handverk sitt heima og í Gömlu-Þingborg þangað sem þau fluttu í nóv.1997. Þau tóku við verslunarrekstrinum í Ullarversluninni Þingborg 1. jan.1998.

Fjölskylda:
Fyrri kona: Helga Þórðardóttir Pálssonar bónda og kennara í Sauðanesi en síðar á
Blönduósi og Sveinbjargar Jóhannesdóttur konu hans.
Börn þeirra
1.
Starri f. 6. sept 1969. Kona hans: Bergþóra Aradóttir frá Ak.
börn þeirra: Þrúður f. 19. apríl 1993, Eir f. 11. jan 1995 og Þorri f. 24. águ 1999


Starri Heiðmarsson - Smellið til að stækka

2. Rakel f. 14. ágúst 1972 Maður hennar: Sigurður Magnússon


Síðari kona: Harpa Ólafsdóttir Jónssonar bónda og kennara í
Skeiðháholti og Jóhönnu Jónsdóttir konu hans

 Ingi Heiðmar Jónsson - Smellið til að stækka

Harpa Ólafsdóttir - Smellið til að stækka


Börn þeirra:
3. Halla Ósk f. 25. maí 1988

Halla Ósk - Smellið til að stækka 

 Halla Ósk - Smellið til að stækka

 Halla Ósk - Smellið til að stækka


4. Sigríður Embla f. 24. maí 1992

Hagyrðingamál.
piano.gif (19450 bytes)Þannig hefur viljað til að Heiðmar hefur kynnst ýmsum hagyrðingum á lífsleiðinni. Jóa í Stapa kynntist hann á Tungusveitarárum sínum upp úr 1970 og síðan hefur sá kunningsskapur haldist og Jói flutti suður litlu síðar en Heiðmar. Þeir félagar fóru norður á Skagaströnd haustið 1989 og boðuðu þangað nokkra kunningja/hagyrðinga til kvöldmatar og samveru. Þar var ákveðið að hittast að ári liðnu á Hveravöllum, sem var miðja vegu milli okkar, sem í Árnesþingi bjuggum og kunningjanna á Norðurlandi. Haustið(ágúst) 1991 var boðað til hagyrðingamóts á Laugum í Dölum, Skúlagarði 1992, Hallormsstað 1993, Flúðum 1994, Bændahöllinni 1995, Núpi 1996, Varmahlíð 1997, Seyðisfirði 1998 og Laugaland í Holtum 1999.

Nú er hægt að senda mér tölvupóst á heidmar@netfang.com

NETFANG.COM LOGIN


Courtesy of the Iceland Lodge Hotel

 

.